SMT - Skólafærni
SMT - sem byggir á sömu hugmyndafræði og PMT, er útfærsla á Postive Behavior Support / PBS, verður innleidd í leik- og grunnskóla Akureyrarbæjar. SMT – skólafærni er hliðstæð aðferð og PMT þar sem lögð er áhersla á að koma í veg fyrir og draga úr hegðunarvanda með því m.a. kenna og þjálfa félagsfærni, hvetja æskilega hegðun og samræma viðbrögð starfsfólks gagnvart nemendum
SMT-aðferðin
Rannsóknir hafa leitt í ljós að í hverjum skóla má gera ráð fyrir þrenns konar nemendum. „Venjulegum“ nemendum (85 til 90%), nemendum sem sýna fyrstu merki andfélagslegrar hegðunar og eiga á hættu að þróa með sér andfélagslegt hegðunarmynstur (7 til 10%) og nemendum sem þegar sýna töluverða andfélagslega hegðun og eru í mikilli áhættu vegna enn frekari vandamála í framtíðinni (3 til 5%). Gert er ráð fyrir því að brugðist sé við þessum þremur nemendahópum á mismunandi hátt og er áætlað að tvö til fjögur ár taki að innleiða þessi vinnubrögð í skólasamfélagið.

Framkvæmd
Á fyrsta ári er lögð áhersla á að styðja alla nemendur skólans. Reglur eru settar fram þannig að þær eru einfaldar, nákvæmar og vel ljóst til hvers er ætlast. Dæmi: Göngum hægra megin, notum innirödd, rusl í ruslafötur. Reglur eru hafðar sýnilegar, hengdar upp á veggi og kenndar með sýnikennslu, dæmum og æfingum. Hvatning er notuð á ýmsa vegu til að umbuna nemendum fyrir árangur, framfarir og það sem vel er gert. Mikil áhersla er á notkun félagslegrar hvatningar (hrós) og margir skólar hafa nýtt sér ýmis konar táknkerfi sem formlega leið hvatningar. Skýr mörk eru sett og skilgreind eru minni háttar og alvarlegri hegðunarfrávik. Vegna óæskilegrar hegðunar eru skilgreindar viðeigandi afleiðingar, þær eru breytilegar og ráðast af alvarleika hegðunar.
Á þriðja ári er lögð áhersla á að styðja við nemendur sem þegar sýna töluverða andfélagslega hegðun. Unnið er mjög markvisst að aukinni aðlögun þessara nemenda í samstarfi við foreldra og jafnvel stofnanir. Stuðlað er að viðeigandi PMT-ráðgjöf fyrir foreldra, auk einstaklingsmiðaðra aðgerða í skóla. Nemandinn fær jafnframt enn þá markvissari kennslu og þjálfun í félagsfærni.
http://www.hafnarfjordur.is/hafnarfjordur/pmt_forsida/smt/skolaverkefnid/