PMT - fagmenntun
PMT-FAGMENNTUN í aðferðum PMT er veitt fagfólki (t.d. sálfræðingum, hjúkrunarfræðingum, félagsráðgjöfum, læknum, námsráðgjöfum, leik- og grunnskólaráðgjöfum og sérkennurum). Markmiðið er að efla færni þessara fagstétta í PMT ráðgjöf og meðferð vegna hegðunarerfiðleika. Fræðslu og þjálfun veita starfsmenn sem hlotið hafa sérþekkingu í PMT meðferð undir handleiðslu og í samstarfi við meginhöfunda aðferðarinnar, Dr. Gerald Patterson, Dr. Marion Forgatch og samstarfsfólk þeirra í Eugene í Oregon í Bandaríkjunum. Sjá nánar:
http://www.hafnarfjordur.is/hafnarfjordur/pmt_forsida/fagmenntun/pmt_grunnmenntun/
Á Akureyri er boðið upp á grunnmenntun í PMT sem er fræðsla um grunnþekkingu í
hugmyndafræði og framkvæmd PMT meðferðar.
Nemendur í grunnmenntun sækja átta námskeiðsdaga í fjórum
lotum og vinna verkefni tengd starfi á milli námslota.