
Frá undirritun samningsins, Sigrún Björk Jakobsdóttir, bæjarstjóri og Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu.
Fréttir 2011:
Grunnmenntun PMT hefst 11. október nk.
Þann 5. október nk. hefst foreldranámskeið fyrir foreldra barna með ofvirkni og/eða
athyglibrest.
Meginmarkmið námskeiðsins er að kenna raunprófaðar og hagnýtar
uppeldisaðferðir sem stuðla að jákvæðri hegðun barns og draga úr
hegðunarvanda. Námskeiðið fékk styrk frá Félagsmálaráðuneytinu til að efla stuðnings- og
nærþjónustu við börn með ADHD. Leiðbeinendur eru PMT meðferðaraðilar,
Guðrún Kristófersdóttir sálfræðingur og Þuríður Sigurðardóttir félagsráðgjafi.
PMT Foreldranámskeið hófst þann 27. september sl. og námskeiðið sækja 14 foreldrar níu barna. Leiðbeinendur eru PMT meðferðaraðilar, Jóhanna Hjartardóttir félagsráðgjafi og Dalrós Halldórsdóttir félagsráðgjafi.
Nýr samningur um meðferðarúrræði með foreldrum unglinga.
Þann 31. maí 2011 undirritaði bæjarstjórinn á Akureyri, Eiríkur Björn Björgvinsson, og Bragi Guðbrandsson forstjóri Barnaverndarstofu samning um tveggja ára framlengingu á samstarfi um meðferðarúrræði með foreldrum unglinga byggð á grunni PMT - Oregon aðferðinni. Meðferðin hefur verið starfrækt frá september 2009 og sinnt af aðilum með PMT meðferðarmenntun. Meðferðin er ætluð foreldrum unglinga með hegðunar- og/eða neysluvanda. Um samvinnuverkefni Fjölskyldudeildar, Skóladeildar og Heilsugæslu er að ræða eins og aðra PMT þjónustu bæjarins.
Maí 2011:
Þann 13. maí lauk áttunda grunnmenntunarnámskeiðinu í aðferðum PMT á Akureyri. Að þessi sinni útskrifuðust 10 fagaðilar. leik- og grunnskólakennarar, iðjuþjálfi, sálfræðingur og þroskaþjálfi. Þá hafa samtals lokið PMT grunnmenntnun 113 aðilar á námskeiðum á Akureyri. Næsta námskeið hefst á haustdögum 2011.
Mars 2011:
Átta vikna foreldranámskeið lauk í lok mars. Að þessu sinni voru 18 foreldrar barna á aldrinum 5 - 10 ára sem luku námskeiðinu.
Janúar 2011:
Þann 21. janúar útskrifuðust 14 fagaðila með grunnmenntun í aðferðum PMT. Um var að ræða leik- og grunnskóla kennara, sálfræðing, hjúkrunarfræðing og upppeldis- og sálfræðiráðgjafa úr Skagafirði.
Fréttir 2010:
PMT foreldrafærninámskeið fyrir foreldra barna með ofvirkni og/eða athyglisbrest á aldrinum 5 – 10 ára hófst 26. október. Meginmarkmið námskeiðsins er að kenna raunprófaðar og hagnýtar uppeldisaðferðir sem stuðla að jákvæðri hegðun barns og draga úr hegðunarvanda. Námskeiðið fékk styrk frá Félagsmálaráðuneytinu til að efla stuðnings- og nærþjónustu við börn með ADHD greiningu.
PMT Foreldrafærinámskeið
Þann19. október hófst 8 vikna námskeið fyrir foreldra barna á aldrinum 5 til 10 ára og eru alls 13 foreldrar, sex barna á námskeiðinu.
Grunnmenntunaraðilar útskrifast.
Þann 30. apríl 2010 luku 16 leikskólakennarar, grunnskólakennarar og iðjuþjálfi grunnmenntun í PMT.
Næsta grunnmenntunarnámskeið hefst í september 2010.
Hér að neðan má sjá útskriftahópinn.
PMT-Foreldrafærni námskeið á Ólafsfirði.
Foreldranámskeið á Ólafsfirði hófst þann 23. febrúar sl.
PMT-Foreldrafærni námskeið.
Námskeið fyrir foreldra eldri barna hófst þann 9. mars sl.og stendur í 8 vikur. Námskeiðið er fyrir foreldra barna á aldrinum 6-12 ára.
PMT-Foreldrafærni námskeið.
Næsta foreldranámskeið hefst þriðjudaginn 12. janúar nk. og stendur í 8 vikur. Námskeiðið er fyrir foreldra barna á aldrinum 4-6 ára.
Fréttir 2009:
PMT-Foreldrafærni námskeið.
Námskeið fyrir foreldra í styðjandi leiðum og aðferðum PMT hefst þriðjudaginn 29. september nk. Námskeiðið er fyrir foreldar barna á aldrinum 5 - 12 ára.
PMT-Foreldarfærni Grunmenntun í Skagafirði.
Þann 15. september sl. hófst Grunnmenntunarnámskeið fyrir leik- og grunnskólakennara í Skagafirði en fjórir leikskólar og einn grunnskóli eru að hefja innleiðslu SMT-Skólafærni. Námskeiðið er samstarfsverkefni Skóladeildar Akureyrarbæjar og Skólaskrifstofu Skagafjarðar og annast verkefnisstjóri PMT-Foreldrafærni á Akureyri skipulagningu og kennslu á námskeiðinu. Alls eru það 16 kennarar víðsvegar úr Skagafirðinum sem sitja námskeiðið.
Útskrift úr PMT grunnmenntun.
Sextán fagaðilar luku PMT-foreldrafærni grunnmenntun í maí 2009. Að þessu sinni voru það sextán aðilar sem luku náminu, þrettán frá Akureyri, leikskólakennarar, kennarar og námsráðgjafar, tveir leikskólakennarar úr Skagafirði og iðjuþjálfi frá Þórshöfn.
Alls hafa útskrifast 68 fagaðilar frá Akureyri, 6 úr Skagafirði, 2 af Fljótsdalshéraði og 1 frá Þórshöfn.
Næsta grunnmenntunarnámskeið verður haldið í Skagafiðri í september nk. og á Akureyri í janúar 2010.
Útskriftarhópurinn
![]()
![]()
Þátttakendur og leiðbeinendur
júní 2009
Í lok maí lauk fimmta PMT-foreldrafærni námskeiðinu. Að þessu sinni var námskeiðið fyrir foreldra yngri barna á aldrinum 4-6 ára.
Samningur um meðferðarúrræði fyrir unglinga á grunni PMT- foreldrafærni.
Þann 22. apríl 2009 var undirritaður samningur milli Akureyrabæjar og Barnaverndarstofu um tveggja ára tilraunaverkefni um meðferð fyrir unglinga með hegðunarvanda.
Meðferðin verður byggð á grunni PMT og munu starfsmenn með PMT ráðgjafar- og meðferðarmenntun í sinna meðferðinni sem verður í formi einstaklings- og fjölskylduráðgjafar og samhæfingu bjargráða í umhverfi fjölskyldunnar. Meðferðin stendur einkum til boða unglingum með hegðunarerfiðleika og neysluvanda og fjölskyldum þeirra.Frá undirritun samningsins, Sigrún Björk Jakobsdóttir, bæjarstjóri og Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu.
PMT- Foreldarfærni námskeið fyrir foreldra barna 4 - 6 ára hófst þann 18. mars sl.
PMT- Foreldarfærni námskeiði lauk þann 21.apríl sl.
Að þessu sinni voru það 13 foreldar 7 barna á aldrinum 6 - 13 ára sem sóttu námskeiðið.
PMT-Foreldrafærninámskeið
Næsta námskeið í Foreldrafærni hefst þriðjudaginn 10. febrúar 2009.
SMT-Skólafærni fréttir( Jákvæður stuðningur við hegðun nemenda PBS)
Þann 16. janúar 2009 útskrifaðist hópur leik- og grunnskólakennara ásamt öðru fagfólki úr Grunnmenntun PMT-foreldrafærni (Parent management training). Nú hafa alls 56 fagaðilar samtals lokið grunnmenntun þar af 17 grunnskólakennarar og 28 leikskólakennarar. Einnig hafa félagsráðgjafar, iðjuþjálfar, hjúkrunarfræðingar, kennsluráðgjafar og námsráðgjafar auk kennara, leikskólakennara og þroskaþjálfa úr Skagafirði, leikskólakennara og fjölskylduráðgjafa frá Fljótsdalshéraði, lokið grunnmenntun PMT hér á Akureyri. Markmið Grunnmenntunar er að efla færni þessara fagstétta í PMT ráðgjöf og meðferð vegna hegðunarerfiðleika. Þessir aðilar eru flestir starfandi innan SMT- Skólafærni skólanna og nýtist þeirra þekking því mjög vel í skólasamfélaginu. SMT-Skólafærni stuðlar að jákvæðu andrúmslofti í skólum og tryggir öryggi og velferð nemenda og starfsfólks. Rannsóknir hafa sýnt að árangursríkar leiðir til að draga úr óæskilegri hegðun nemenda fela í sér að auka félagsfærni nemenda, aðlaga námsefnið að hverjum og einum og beita þekktum náms- og hegðunarlögmálum sem er það sem SMT Skólafærnin byggir á. Næsta grunnmenntunarnámskeið á Akureyri hefst 21. janúar.
Útskriftarhópurinn ásamt kennurum.
Fréttir 2008:
Góðir gestir í heimsókn
Þann 23. október 2008 komu góðir gestir í heimsókn til Akureyrar frá Hafnarfirði og Seltjarnarnesi. Þar voru á ferðinni leikskólastjórnendur úr SMT-Skólafærni leikskólum sem skoðuðu tvo SMT-Skólafærni leikskóla á Akureyri; Kiðagil og Holtakot og funduðu síðan með skólastjórnendum úr SMT-Skólafærni leikskólum á Akureyri.
Meðfylgjandi eru myndir frá heimsókninni og frá fundinum.
![]()
![]()
20. ágúst 2008
Í síðustu viku var undirritaður samningur á milli Fræðslusviðs Hafnarfjarðar og Skóladeildar Akureyrarbæjar um áframhaldandi þjónustu vegna PMT - Foreldrafærni og SMT-Skólafærni á Akureyri. Skólaskrifstofa Hafnarfjarðar hefur verið í fararbroddi við innleiðslu þessarar aðferða í samvinnu við sérfræðinga í Oregon Social learning center í Eugene í Bandaríkjunum. Á sama tíma útskrifuðust fjórir PMT meðferðaraðilar úr meðferðarnámi við Skólaskrifstofu Hafnarfjarðar, þar af tveir starfsmenn Akureyrarbæjar, þær Þuríður Sigurðardóttir, verkefnisstjóri PMT og SMT á Akureyri og Jóhanna Hjartardóttir félagsráðgjafi Fjölskyldudeild.
Fjórir starfmenn Akureyrarbæjar munu hefja PMT meðferðarnám nú á haustdögum við skólaskrifstofu Hafnarfjarðar.
Á Akureyri er PMT-Foreldrafærni og SMT – Skólafærni samstarfsverkefni skóladeildar, Heilsugæslu og Fjölskyldudeildar. PMT stendur fyrir “parent management training” sem er aðferð fyrir foreldra og aðra sem koma að uppeldi barna og hefur það meginmarkmið að fyrirbyggja alvarlega hegðunarerfiðleika og vinna markvisst með hegðun barna með aðferðum PMT. SMT- Skólafærni er byggt á hugmyndafræði PMT þar sem aðferðin er innleidd með heildrænum hætti í skólasamfélagið. Nú eru þrír SMT grunnskólar á Akureyri, Oddeyrarskóli, Síðuskóli og Lundarskóli og 6 leikskólar, Flúðir, Holtakot, Kiðagil, Lundarsel og Pálmholt. Tveir nýir leikskólar munu bætast við nú í haust, Hlíðarból og Síðusel.
Gunnar Gíslason fræðslustjóri og
Magnús Baldursson fræðslustjóri Fræðslusviðs Hafnarfjarðar handsala samninginn
.
Þrír af útskriftarnemum úr PMT meðferðarmenntun; Arndís Þorsteinsdóttir, Reykjavíkurborg, Jóhanna Hjartardóttir og Þuríður Sigurðardóttir.
PMT Grunnmenntun hefst 2. september 2008.
Næsta PMT foreldranámskeið hefst þann 6.september 2008.
Þriðja PMT foreldranámskeiði lokið.
Þann 1. apríl 2008 lauk þriðja PMT foreldranámskeiðinu á Akureyri. Að þessu sinni voru það 10 foreldrar sem luku við námskeiðið sem haldið var í Brekkuskóla. PMT foreldranámskeið er námskeið til að efla foreldrafærni og stendur í átta skipti. Alls hafa 33 foreldrar 22 barna með hegðunarvanda á aldrinum 4 – 11 ára lokið PMT foreldranámskeiðum og til saman eiga þeir 48 börn á aldrinum 0 – 18 ára. Á síðustu tveimur árum hafa einnig ellefu foreldrar barna með hegðunarvanda farið í gegnum PMT meðferð en PMT meðferð er úrræði fyrir börn með meiri hegðunarvanda. Næsta foreldranámskeið verður haldið í september 2008.
Útskrift úr PMT grunnmenntun.
Þann 16. janúar 2008 útskrifaðist þriðji hópurinn úr grunnmenntun PMT - Foreldrafærni og hafa nú alls 46 fagaðilar lokið grunnmenntun frá því að verkefnið hófst hér á Akureyri. Útskriftarnemendur koma úr leik- og grunnskólum auk fagfólks frá Heilsugæslu, Fjölskyldudeild og Skóladeild. Samtals hafa 15 grunnskólakennarar á Akureyri lokið námskeiðinu, og 18 leikskólakennarar. Á þessu námskeiði voru einnig tveir kennarar frá Sauðárkrók en Skagfirðingar stefna á að innleiða PMT – Foreldrafærni og sækja námskeið til Akureyrar.
Markmið með grunnmenntun í aðferðum PMT er kynna þátttakendum hugmyndafræði og framkvæmd PMT- Foreldrafærni en einnig að efla fagstéttir í ráðgjöf vegna hegðunar barna.
Allflestir fagaðilar sem lokið hafa grunnmenntun í PMT koma úr skólum sem hafa ákveðið að innleiða SMT – Skólafærni verkefnið. Þeir eru Oddeyrarskóli og Síðuskóli, auk Lundarskóla sem er á undirbúningsári og leikskólarnir Kiðagil, Flúðir, Lundarsel og Holtakot, auk Sunnubóls og Pálmholts sem eru á undirbúningsári.
Næsta PMT Grunnmenntunarnámskeiðið hefst haustið 2008.
Þátttakendur á námskeiðinu ásamt leiðbeinendum þeim Margréti Sigmarsdóttur frá Skólaskrifstofu Hafnarfjarðar, Jóhönnu Hjartardóttur og Þuríði Sigurðardóttur.
Margrét Sigmarsdóttir verkefnisstjóri PMT - Foreldrafærni í Hafnarfirði færir Gunnari Gíslasyni bókargjöf.
Þáttakendur í grunnmenntun 2008.
Fréttir 2007:
PMT foreldranámskeið
Nú er öðru PMT foreldranámskeiðinu á Akureyri lokið og að þessi sinni voru það 10 foreldrar alls 17 barna sem sátu námskeiðið. Stefnt er að því að nýtt námskeið hefjist þann 15. janúar 2008. Námskeiðið er fyrir foreldra barna sem eiga í erfiðleikum með hegðun eða skap eða eru í áhættu vegna hegðunarvanda. Á námskeiðinu eru kenndar styðjandi uppeldisleiðir, s.s. skýr fyrirmæli, hvatning, að setja mörk, lausnarleit, eftirlit og tengsl við skóla.
Námskeiðið stendur yfir í 8 skipti, 7 skipti vikulega en síðan er eitt skipti eftirfylgd. Námskeiðið er niðurgreitt af Akureyrarbæ og einnig hefur Akureyrardeild Rauða-Krossins styrkt útgáfu á námsefni.
Nánari upplýsingar gefur verkefnisstjóri PMT Þuríður Sigurðardóttir á Skóladeild Akureyrarbæjar, thuridur@akureyri.is, s. 460-1417.
PMT foreldranámskeið
PMT námskeiðið fyrir foreldra hófst þann 18.september og stendur í 8 skipti. Um er að ræða hópnámskeið fyrir foreldra barna og er meginmarkmið námskeiðanna að kenna foreldrum að nota PMT foreldraverkfæri.
Foreldrar eru mikilvægustu kennarar barna sinna og er lögð áhersla á að kenna foreldrum að nota styðjandi uppeldisaðferðir. Unnið er með ákveðna grunnþætti til að stuðla að jákvæðri hegðun barnsins og draga úr hegðunarvanda. Verkfærin sem eru notuð eru: Fyrirmæli og jákvæð samskipti við barnið, notkun hvatningar við kennslu nýrrar hegðunar, að setja mörk til að draga úr og stöðva óæskilega hegðun, lausn vanda og uppbyggilegar aðferðir í samskiptum innan fjölskyldu, eftirlit með hegðun barns innan og utan heimilis, tengsl við skólakerfið og stjórn neikvæðra tilfinninga.
PMT á Akureyri er samvinnuverkefni Fjölskyldudeildar, Heilsugæslu og Skóladeildar. Verkefnið hefur hlotið styrk úr Forvarnarsjóði en einnig hefur Rauðakrossdeildin á Akureyri styrkt kaup á námefni til foreldra. Stefnt er að því að halda foreldranámskeiðin reglulega.
PMT Grunnmenntunar Fréttir
Þriðja PMT Grunnmenntunarnámskeiðið á Akureyri hófst 30. ágúst sl. Að þessu sinni eru það 16 starfsmenn leik- og grunnskóla, Heilsugæslustöðvarinnar ásamt kennurum úr Skagafirði sem sækja námskeiðið. Nú hafa 30 fagaðilar lokið grunnmenntun í PMT á Akureyri.
PMT- foreldrafærni er aðferð fyrir foreldra og aðra þá er koma að uppeldi barna. Um er að ræða úrræði fyrir foreldra barna með hegðunarerfiðleika sem hefur það einnig að markmiði að fyrirbyggja alvarlega hegðunarerfiðleika.
SMT-skólafærni miðar að því að því að fyrirbyggja, koma í veg fyrir og draga úr óæskilegri hegðun nemenda og taka á hegðunarvanda. Verið er að innleiða SMT-skólafærni, sem byggir á hugmyndafræði PMT-foreldrafærni, í leik- og grunnskólum Akureyrabæjar.
Tveir Grunnskólar, Oddeyrarskóli og Síðuskóli, og fjórir leikskólar, Holtakot, Flúðir, Kiðagil og Lundasel, hefja formlega innleiðslu SMT í vetur og Lundarskóli er að byrja undirbúningsár ásamt leikskólunum Pálmholti og Sunnubóli.
Útskrift PMT Grunnmenntunaraðila á Akureyri
Þann 30.maí 2007 útskrifaðist annar hópur fagaðila með grunnmenntun í PMT. Samtals útskrifuðust 17 aðilar úr leik- og grunnskólum, frá Fjölskyldudeild, Skóladeild og Heilsugæslu. Þetta er annar hópurinn sem útskrifast á Akureyri og hafa samtals 30 fagaðilar nú lokið Grunnmenntun í PMT.
PMT- foreldrafærni er aðferð fyrir foreldra og aðra þá er koma að uppeldi barna. Um er að ræða úrræði fyrir foreldra barna með hegðunarerfiðleika en hefur einnig það markmið að fyrirbyggja alvarlega hegðunarerfiðleika.
SMT - Skólafærni miðar að því að því að fyrirbyggja, koma í veg fyrir og draga úr óæskilegri hegðun nemenda og taka á hegðunarvanda. SMT- Skólafærni, sem byggir á hugmyndafræði PMT-Foreldrafærni, mun verða innleidd í leik-og grunnskóla Akureyrabæjar.
Tveir Grunnskólar, Oddeyrarskóli og Síðuskóli hafa í vetur unnið undirbúning að innleiðslu sem hefst af fullum krafti næsta haust og fjórir leikskólar Holtakot, Flúðir, Kiðagil og Lundasel. Einn grunnskóli mun hefja undirbúning að SMT innleiðslu næsta haust og tveir leikskólar.
Nánari upplýsingar um PMT verkefnið hjá Akureyrarbæ má fá á heimasíðu bæjarins, pmt.akureyri.is.
Útskriftarhópurinn ásamt leiðbeinendum, Jóhönnu Hjartardóttur, Margréti Sigmarsdóttur og Þuríði Sigurðardóttur.
Fréttir 2007:
Fyrsta PMT foreldranámskeiðið á Akureyri
Fyrsta PMT foreldranámskeiðið á Akureyri hefst þriðjudaginn 27. mars Rósenborg- Möguleikamiðstöð og stendur í sjö þriðjudagskvöld auk eftirfylgdar mánuði eftir að námskeiði lýkur. Um er að ræða hópnámskeið fyrir foreldra barna með væga hegðunarerfiðleika eða barna í áhættu vegna hegðunarerfiðleika. Meginmarkmið námskeiðanna er að kenna foreldrum að nota PMT foreldraverkfæri. En PMT stendur fyrir “parent management training” og er ítarlega rannsakað meðferðarúrræði til að draga úr hegðunarvanda barna og unglinga. PMT skilar mestu ef unnt er að grípa inn í snemma og hefur þannig mikið forvarnargildi. Megin höfundar þessarar aðferðar eru DR. Gerald Patterson, Dr. Marion Forgatch og samstarfsfólk þeirra í Oregon í Bandaríkjunum.
Foreldrar eru mikilvægustu kennarar barna sinna og er lögð áhersla á að kenna foreldrum að nota styðjandi uppeldisaðferðir. Unnið er með ákveðna grunnþætti til að stuðla að jákvæðri hegðun barnsins og draga úr hegðunarvanda. Verkfærin sem eru notuð eru: Fyrirmæli og jákvæð samskipti við barnið, notkun hvatningar við kennslu nýrrar hegðunar, að setja mörk til að draga úr og stöðva óæskilega hegðun, lausn vanda og uppbyggilegar aðferðir í samskiptum innan fjölskyldu, eftirlit með hegðun barns innan og utan heimilis, tengsl við skólakerfið og stjórn neikvæðra tilfinninga.
PMT á Akureyri er samvinnuverkefni Fjölskyldudeildar, Heilsugæslu og Skóladeildar. Verkefnið hefur hlotið styrk úr Forvarnarsjóði en einnig hefur Rauðakrossdeildin á Akureyri styrkt kaup á námefni til foreldra. Stefnt er að því að halda foreldranámskeiðin reglulega.
Nánari upplýsingar um PMT verkefnið hjá Akureyrarbæ má fá á heimasíðu verkefnisins: pmt.akureyri.is og hjá Þuríði Sigurðardóttur verkefnisstjóra PMT á Skóladeild s. 460-1417.
Útskrift fyrstu fagmenntunaraðila í Grunnmenntun PMT frá Akureyri.
Föstudaginn 12.janúar 2006 útskrifuðust fyrstu fagmenntunaraðilar í Grunnmenntun í PMT frá Akureyri. Að þessu sinni útskrifuðust 13 konur, leik- og grunnskólakennarar og ráðgjafar á Fjölskyldudeild og er útskrift þessara fagmenntunaraðila fyrsti áfanginn PMT verkefninu. Myndir af útskrift úr Ketilhúsinu.
Þuríður Sigurðardóttir verkefnisstjóri PMT Akureyri og Margrét Sigmarsdóttir verkefnisstjóri PMT - Foreldrafærni í Hafnarfirði
Elín Hallgrímsdóttir formaður Skólanefndar
Afhending útskriftarskjala
Útskriftarhópurinn
Næsta námskeið í Grunnmenntun PMT á Akureyri hefst þann 8. febrúar 2007 en stefnt er að því að bjóða upp á námskeið til fagaðila einu sinni til tvisvar á ári. Einnig verður PMT foreldrameðferð í boði fyrir foreldra barna með hegðunarvanda, PMT foreldranámskeið, fyrir foreldra barna með væg hegðunarfrávik, auk þess sem stefnt verður á að bjóða upp á fræðslu til allra foreldra um PMT.