PMT - foreldrafærni  og  SMT - skólafærni á Akureyri                  

PMT – foreldrafærni, “Parent Management Training” er þjónusta við börn, foreldra og skóla sem hefur það meginmarkmið að fyrirbyggja alvarlega hegðunarerfiðleika og taka markvisst á hegðun barna með aðferðum PMT. PMT byggir á áratuga rannsóknum, sem sýna góðan árangur. Í 70% tilvika virðist draga úr hegðunarerfiðleikum heima og í skóla og hefur jákvæðan árangur á námsárangur og samskipti innan fjölskyldu. http://www.hafnarfjordur.is/pmt_forsida/fraedsluefni/

 

  SMT- skólafærni, (útfærsla á bandarísku aðferðinni positive Behevior Support/ PBS) byggir á hugmyndafræði PMT og verður jafnframt innleidd í leik-og grunnskóla Akureyrarbæjar. SMT-skólafærni er hliðstæð aðferð og PMT þar sem lögð er áhersla á að koma í veg fyrir og draga úr hegðunarvanda með því m.a. að kenna og þjálfa félagsfærni, hvetja æskilega hegðun og samræma viðbrögð starfsfólks gagnvart nemendum sem sýna óæskilega hegðun. http://www.hafnarfjordur.is/pmt_forsida/smt/

 

Að þessu verkefni koma Skóladeild, Fjölskyldudeild og Heilsugæsla. Verkefnisstjóri er Þuríður Sigurðardóttir, félagsráðgjafi og kennari og er hún staðsett á skóladeild. Fimm fagaðilar hafa lokið sérfræðimenntun frá fræðslusviði Hafnarfjarðar í PMT. Fræðslusvið Hafnarfjarðar er frumkvöðull að því að innleiða þessa aðferð á Íslandi og fær Akureyrarbær aðstoð frá Hafnarfirði við að koma þessu verkefni af stað.

Verkefnið hefur fengið styrk úr forvarnarsjóði. Einnig styrkti Akureyrardeild Rauða-Krossins útgáfu á foreldramöppum á námskeiðum fyrir foreldra.

PMT Fréttir Meðferð Foreldranámskeið Grunnmenntun Meðferðarmenntun SMT SMT skólar Eyðublöð Tenglar á efni

PMT -foreldrafærni, Skóladeild Akureyrar, Glerárgötu 26, 600 Akureyri. Sími 460-1417. Netfang: thuridur(hjá)akureyri.is